Rjúkandi Napólí-pítsur á hjólum.

FLATEY VAGNINN

Flatey vagninn er glænýr matarvagn með eldofni, eldhúsi og öllu til alls. Við tökum að okkur að reiða fram rjúkandi Flatey-pítsur fyrir viðburði af ýmsu tagi - sendu okkur línu og við svörum um hæl.

Brúðkaup

Fermingarveislur

Starfsmannapartí

Árshátíðir

Tónleikar og bæjarhátíðir

MATSEÐILL

Hlaðborð eða pizza á mann

  • Pizza á mann

Þið veljið 4 pítsur af matseðli sem eru í boði auk hvítlauksbrauðs. Gestirnir panta hver fyrir sig.

  • Pizza-hlaðborð

Þið veljið 4 pítsur af matseðli sem við bökum jafnt og þétt og afgreiðum í formi sneiða (¼ úr 10” pítsu).

*Verð á pítsu er það sama hvort sem um ræðir hlaðborð eða ekki. Almennt miðum við við að hver gestur njóti heillrar pítsu, en fyrir viðburði þar sem pítsan er ekki eini eða aðalrétturinn má alla jafna miða við ½ til ¾ pítsu á mann. Í slíkum tilfellum má til dæmis miða við 70 pítsur fyrir 100-110 manna hóp.

Veldu allt að fjórar pítsur af matseðlinum, auk okkar dásamlega hvítlauksbrauðs. Verð á pítsu er 3.290* og lágmarksmagn 70 pítsur *Hádegistilboð - Aðeins 2990,- á mann á virkum dögum fyrir kl 17:00.

Marinara

San Marzano tómatar, Hvítlaukur, Oregano, Basilíka, Ólífuolía (enginn ostur)

Margherita

San Marzano tómatar, Ferskur mozzarella, Basilíka, Ólífuolía

Diavola

Pepperoni (smáskorið) á Margheritu-grunni

Padrino

San Marzano tómatar, Ferskur mozzarella, Pepperoni, Pikklaður chili, Hunang, Basilíka

Umberto

San Marzano tómatar, Ferskur mozzarella, Pepperoni, Döðlur, Mascarpone rjómaostur, Basilíka

Monella

San Marzano tómatar, Ferskur mozzarella, Parmesan, Oregano, Chili flögur, Basilíka, Ólífuolía

Nduja

Nduja kryddpylsa, Ricotta á Margheritu-grunni

Bianca

Mozzarella, Parmesan, Ricotta, Pepperoni, Hvítlaukur og Mike's Hot Honey.

Cotto

San Marzano tómatar, Ferskur mozzarella, Silkiskorin skinka, Sveppir, Mascarpone rjómaostur, Ólífuolía og Basilíka

Hvítlauksbrauð

Ferskur Mozzarella, Hvítlaukur, Oregano, Parmesan.

SVONA VIRKAR ÞETTA

01

Hafðu samband

Með því að fylla út bókunarformið. Segðu okkur frá viðburðinum sem um ræðir. Ekki skemmir fyrir að hafa dagsetningu, staðsetningu og gestafjölda á hreinu.

02

Fáðu verðtilboð

Við svörum um hæl um hvort vagninn sé laus, hvers kyns þjónusta gæti hentað og hvert verðið er.

03

Bókaðu og staðfestu

Ef allt er á tæru og þú vilt bóka umrædda dagsetningu förum við fram á staðfestingargjald sem er 40.000 kr. Full greiðsla á sér svo stað 2 vikum fyrir viðburð. Hér förum við líka vel yfir smáatriði eins og í hve langan tíma vagninn er opinn. Þú velur svo auðvitað þinn matseðil (getur jafnvel búið til þínar eigin pítsur og kallað þær það sem þú vilt). Við staðfestum svo öll smáatriði 2 vikum fyrir settan dag svo allt sé örugglega á hreinu.

SPURT OG SVARAÐ

Já, sjá verðskrá.

Það veltur á viðburðinum. Við mælum við hálfri til ⅔ pítsu fyrir hvern gest ef um er að ræða veislu þar sem annað snarl er í boði. Við mælum svo með ⅔ til einnar pítsu fyrir hvern gest þar sem um er að pítsan er aðalrétturinn.

Við eldum þann fjölda pítsa sem þú pantar. Ef það bendir til að gestirnir muni ekki ná að snæða allt strax þá skellum við restinni í pizzakassa sem hægt er að taka með.

Við komum aðeins með nóg hráefni í það magn sem er pantað fyrirfram. Deigið okkar er látið hefast í rúmlega sólarhring svo það er því miður ekki hægt að galdra fram meira innan dagsins.

Stærð vagnsins er um 6 metrar á lengd, 2,4 metrar á breidd og 3 metrar á hæð. Gott er að gera ráð fyrir um 6m x 4m svæði. Einnig þurfum við aðgang að rafmagni.

Við sjáum um það, auk pítsukassa fyrir afanga ef þörf krefur.

Þú getur valið allt að fjórar pítsur af matseðlinum okkar, auk hvítlauksbrauðs.

Já. Við getum fundið út úr því saman!

Það er ekkert mál að bjóða upp á vegan eða grænmetis möguleika. Við gerum okkar besta til að finna út úr því ef einhver hluti gesta er með frekari sérþarfir í mataræði.

Á fullum afköstum getum við afgreitt kringum 60 pizzur á klukkustund.

Sjálfsagt. Segðu okkur bara hver áætlaður gestafjöldi er. Við staðfestum svo lokatöluna tveimur vikum fyrir settan dag.

Tveimur vikum fyrir settan dag þurfum við að vera með allt á hreinu: matseðilinn, sérþarfir ef einhverjar, tímasetningar og fjölda pítsa.

Við bjóðum upp á bæði pítsuhlaðborð (sem við mælum með fyrir einkaviðburði) og „a la carte“, þ.e.a.s. heil pítsa á mann. Hlaðborðið hefur þá kosti að ganga hraðar fyrir sig og gefa fólki val um fleiri en eina tegund.

Við mætum 1-2 klukkustundum áður en afgreiðslan á að hefast. Við erum svo um hálftíma að taka saman.

Allt að tvær klukkustundir er hefðbundinn afgreiðslutími. Þú lætur okkur vita ef þú þarft meiri tíma.

  • 2 vikum áður eða fyrr - staðfestingargjald (40.000 kr.)

  • 2 vikum til 3 dögum áður - 20% af heildarupphæð

  • 3 dagar til 24 klst - 40% af heildarupphæð

  • Minna en 24 klst - 60% af heildarupphæð

Panta Flatey vagninn

flag+354

Nánari upplýsingar

Það hjálpar okkur að vita sem mest um ykkar hugmyndir um viðburðinn. Til dæmis aðstæður á staðnum, tími og tímalengd og fleira.

SKILMÁLAR

Verð

Verðskrá gildir fyrir árið 2025. Athugið að sérstakt gjald bætist við ef viðburðurinn er haldinn á stórhátíðardegi (nýársdagur, föstudagurinn langi, páskadagur, hvítasunnudagur, 17. júní, aðfangadagur, jóladagur, gamlársdagur).

Staðfestingargjald

Staðfestingargjald er 40.000 krónur og þarf að greiðast a.m.k. 2 vikum fyrir settan dag. Staðfestingargjaldið fæst ekki endurgreitt ef hætt er við minna en 2 vikum áður. Staðfestingargjaldið fer svo upp í heildarupphæðina.

Athafnasvæði

Vagninn er um 6m x 2,5m og 3m á hæð og þarf því ágætis athafnapláss. Vagninn þarf aðgang að rafmagni (helst 3 fasa 32A) en ef slíkt er ekki fyrir hendi er hægt að athuga með að leigja rafstöð.

Óviðráðanlegar aðstæður

Ske kunni að hætta þurfi við af óviðráðanlegum aðstæðum (veður, bilun tækja eða þessháttar) áskiljum við okkur réttinn til að forfallast og endurgreiða áfallinn kostnað.