Skilmálar

Síðast uppfært 19. nóvember 2026

Þessir skilmálar gilda um pantanir og kaup á gjafabréfum í gegnum vefsíðu Flatey Pizza, flateypizza.is. Með því að senda inn pöntun samþykkir þú skilmálana.

1. Seljandi

Flatey Pizza er rekið af Reykjavík Napólí ehf., kt. 530317-0990, Grandagarði 11, 101 Reykjavík. VSK-númer 128002. Netfang: flateypizza@flateypizza.is.

2. Pantanir og verð

Pantanir eru háðar framboði hverju sinni. Öll verð eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Pöntun telst staðfest þegar greiðsla hefur borist og þú hefur fengið staðfestingu. Við áskiljum okkur rétt til að hafna pöntun og endurgreiða hana að fullu ef sérstakar ástæður krefjast þess.

3. Greiðsla

Greitt er með greiðslukorti, eða Apple Pay þar sem það býðst, í gegnum greiðslugátt Teya. Kortaupplýsingar fara beint til Teya og við fáum hvorki né geymum fullt kortanúmer.

4. Afhending

Pantanir af vefnum eru sóttar á þann veitingastað sem þú velur í pöntunarferlinu. Áætlaður afhendingartími birtist í pöntunarferlinu og er til viðmiðunar.

5. Gjafabréf

Gjafabréf sem keypt eru á vefnum eru send í tölvupósti á netfangið sem gefið er upp við kaupin. Gættu þess að netfangið sé rétt.

6. Afpöntun og kvartanir

Þar sem matur er útbúinn eftir pöntun gildir 14 daga skilaréttur laga um neytendasamninga ekki um matarpantanir. Viljir þú afpanta, hafðu samband við okkur sem fyrst á flateypizza@flateypizza.is eða í síma 588 2666; hafi matreiðsla ekki hafist reynum við að verða við því. Ef eitthvað er athugavert við pöntunina, láttu okkur vita sem fyrst og við finnum lausn.

7. Ofnæmi og óþol

Ef þú ert með ofnæmi eða óþol, hafðu samband við veitingastaðinn áður en þú pantar.

8. Aðgangur

Þú getur skráð þig inn með símanúmeri og staðfestingarkóða sem sendur er með SMS til að fylgjast með pöntunum þínum. Þú berð ábyrgð á að upplýsingar sem þú gefur upp séu réttar.

9. Lög og varnarþing

Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur getur þú einnig leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

10. Breytingar

Við getum uppfært skilmálana. Gildandi útgáfa er alltaf á þessari síðu og um hverja pöntun gilda skilmálarnir eins og þeir voru þegar pöntunin var gerð.