Persónuverndarstefna

Síðast uppfært 19. nóvember 2026

Hér kemur fram hvaða persónuupplýsingum Flatey Pizza safnar þegar þú notar vefsíðuna flateypizza.is og hvernig við förum með þær.

1. Ábyrgðaraðili

Reykjavík Napólí ehf., kt. 530317-0990, Grandagarði 11, 101 Reykjavík, er ábyrgðaraðili vinnslunnar. Fyrirspurnir um persónuvernd sendist á flateypizza@flateypizza.is.

2. Upplýsingar sem við söfnum

  • Pantanir og aðgangur: nafn, símanúmer, netfang og pantanasaga. Kortagreiðslur fara í gegnum Teya og við geymum ekki kortanúmer.

  • Gjafabréf: netfangið sem gjafabréfið er sent á.

  • Fyrirspurnir og bókanir: það sem þú sendir í gegnum hafa samband-, veislu- og hópbókunarformin, svo sem nafn, netfang, símanúmer, kennitölu fyrirtækis og upplýsingar um viðburðinn.

  • Atvinnuumsóknir: nafn, kennitala, netfang, símanúmer, heimilisfang og aðrar upplýsingar og viðhengi (t.d. ferilskrá) sem þú sendir með umsókn.

3. Tilgangur og heimild

Við notum upplýsingarnar til að afgreiða pantanir og gjafabréf, senda staðfestingar og svara fyrirspurnum (efndir samnings), til að halda bókhald (lagaskylda), til að meta atvinnuumsóknir (ráðstafanir að beiðni umsækjanda áður en samningur er gerður) og til að bæta vefinn, finna villur og mæla árangur auglýsinga (lögmætir hagsmunir).

4. Vafrakökur og mælingar

Vefurinn notar nauðsynlegar vafrakökur og vafrageymslu, t.d. fyrir innskráningu og körfu. Hann notar einnig Google Analytics og Meta Pixel til að mæla notkun og árangur auglýsinga. Þú getur lokað á vafrakökur í stillingum vafrans, en þá getur hluti vefsins hætt að virka.

5. Vinnsluaðilar

Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Þjónustuaðilar sem vinna gögn fyrir okkur eru Upsell (pöntunarkerfi og hýsing vefsins), Teya (greiðslur), Twilio SendGrid (sending tölvupósts úr formum vefsins), Sentry (villuskráning), Google (Google Analytics) og Meta (Meta Pixel). Borðapantanir fara fram á vef Dineout, sem fer með þær upplýsingar samkvæmt eigin skilmálum.

6. Varðveisla

Pantanagögn eru varðveitt eins lengi og lög um bókhald krefjast, nú sjö ár. Önnur gögn eru varðveitt meðan þörf er á þeim vegna tilgangsins hér að ofan.

7. Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun og flutningi gagna, og getur andmælt vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum. Sendu beiðni á flateypizza@flateypizza.is. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

8. Breytingar

Við getum uppfært stefnuna. Gildandi útgáfa er alltaf á þessari síðu.